Hlutverk

„Hlutverk okkar er að reyna hjálpa öllum þeim landsmönnum sem minna mega sín, hvort sem það eru öryrkjar, atvinnulausir, einstæðar mæður eða feður, eldri borgarar, fátækar fjölskyldur eða einstæðingar. Aðstoð okkar er í formi úthlutunar á mat og úr lyfjasjóði og sölu á ódýrum fatnaði.
 

Við munum gera allt það sem í okkar valdi stendur til að ná niður kostnaði, safna fé, safna fatnaði og mynda ný viðskiptatengsl með það að leiðarljósi að hjálpa sem flestum með sem minnstum tilkostnaði. Við lítum á allan kostnað sem okkar helsta óvin þar sem hann bitnar á fjölda þeirra sem við getum aðstoðað.


Við viljum að fólki finnist það velkomið og sé óhrætt við að leita til okkar. Bæði þeir sem þurfa á aðstoð að halda og þeir sem vilja hjálpa okkur að hjálpa öðrum. Við erum hér fyrir fólkið.”
 

Fjölskylduhjálp Íslands © 2010 | Veftré | Hafðu samband