Fréttir
Lokað verður í janúar og fram til 22. febrúar fyrir matarúthlutun í Reykjavík og Keflavík. Opnum í Eskihlíðinni miðvikudaginn 22. febrúar og í Keflavík fimmtudaginn 23.febrúar 2012.
Skráning fyrir jólaaðstoð er frá 22. nóvember til og með 9. desember að Eskihlíð 2 - 4 virka daga frá kl. 13 til 16.
Hjálp í neyð, símasöfnun Fjölskylduhjálpar Íslands stendur yfir.Sjálfboðaliðar okkar hringja út til landsmanna og óska eftir stuðningi. Við erum að safna fyrir matvælum. Það eru 2500 börn sem búa hjá foreldrum sem sækja reglulega um mataraðstoð hjá okkur. Síminn gerði okkur það kleift að koma upp símaveri í húsakynnum okkar í Eskihlíðinni og notum við Point posa fyrir þá sem vilja greiða með korti.
Við veitum mataraðstoð alla miðvikudaga frá kl. 14.00 til 16.30 í Reykjavík og alla fimmtudaga frá kl. 16.00 til 18.00 á Reykjanesi. Velkomin að senda okkur skilaboð á netfangið fjolskylduhjalp@simnet.is. Sími formanns er 892-9603.


