Framtíðarsýn

„Framtíðarsýn okkar er að vera óþörf og geta lagt starfssemina niður. Það er að segja að enginn þurfi á okkar aðstoð að halda í framtíðinni.

 
Í millitíðinni sækjumst við eftir að ná í það fjármagn til að hjálpa öllum þeim sem þurfa á aðstoð að halda. Mikilvægt er að fá stærra húsnæði til að geta boðið upp á betri aðstöðu fyrir þann fjölda fólks sem til okkar leitar. Við viljum geta boðið skjólstæðingum okkar upp á kaffi og börnum stað til að leika sér á, á meðan úthlutun stendur yfir. Einnig sækjumst við eftir að bæta við fleiri þjónustueiningum inn í starfsemina.


Þegar fólk hugsar um gott góðgerðarstarf þar sem almannafé og styrkjum er ráðstafað á þann veg sem best skal gera, þá hugsar það um okkur.“
 

Fjölskylduhjálp Íslands © 2010 | Veftré | Hafðu samband